Bridgefélag nýliða - Spilakvöld 10. nóvember

miðvikudagur, 9. nóvember 2016
Höldum ótrauð áfram með spilakvöld nýliða fimmtudaginn 10. nóvemer eftir smá vesen síðasta fimmtudag (Ómar í Köben á fundi og náðist ekki að finna varamann...)

Hægt er að mæta með makker eða þá stakur/stök og Ómar/Magnús spilastjóri spilar sjálfur eða reddar makker.
Gott að mæta með kerfisblöðin en annars hægt að prenta þau út og tilvalið að spyrja ráða.
Spilagjald 1000 kr. Kaffi innifalið. Frítt fyrir 25 ára og yngri.
Ókeypis Prins póló (eða 100 kall ef með klink)
Ný stigakeppni komin í gang.
Úrslit og myndir á Facebooksíðu Bridgefélags nýliða: https://www.facebook.com/groups/1395240690728458/
Sjáumst hress við bridgeborðið :)

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar