TM Selfossi vann HSK mótið í sveitakeppni.
laugardagur, 2. apríl 2016
HSK-mótið í sveitakepni 2016 fór fram laugardaginn 02 apríl með þáttöku 10 sveita.
HSK meistarar urðu sveit Tryggingamiðstöðvarinnar á Selfossi með aðeins þremur stigum meira en næsta sveit. Meistararnir heita Kristján Már Gunnarsson, Gunnlaugur Sævarsson, Helgi Grétar Helgason og Björn Snorrason. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgesambands Suðurlands.