Rangæingar -- Vormenn Íslands
Þrátt fyrir nokkurn óróleika í samfélaginu hertum við Rangæingar okkur í að koma saman að Heimalandi sl. þriðjudagskvöld til að leika 4. umferð af 5 í Samverkstvímenningnum.
Í takt við nýja og bætta stjórnsýslu töldum við stjórnarmenn í Bridgefélaginu rétt að lýsa því yfir að félagið ætti engine aflandsfélög né aura á ókunnum ströndum. Spilastjóri er að vísu tíður gestur á Ströndum en það er auðvitað önnur saga.
Vormenn Íslands eru félagsmenn í Bridgefélagi Rangæinga. Síðan sól fór að hækka í janúar hafa þeir spilað eins og sannir meistarar og æ betur eftir því sem lengra hefur komið frá á vorið. Spiluðu para best í sveitakeppninni og enn betur í SAmverkstvímenningnum. Eru efstir í honum nú, þegar lakasta kvöldið er lagt frá.
Skógabóndinn skynsami og Moldvertinn vísi enduðu enda efstir sl. þriðjiudag með 65,4% skor. Næstir inn urðu æfingafélagarnir og næsturgalarnir frá Ægissíðu með 61,5% skor. Aðrir voru bara ekki eins góðir.
Úrslit og spil má sjá hér og stöðuna í Samverkstvímenningnum hér þegar öll kvöldin eru talin saman en til úrslita telja 4 bestu kvöldin af 5.