Rangæingar -- Skipstjóravals

laugardagur, 19. mars 2016

Sl. þirðjudag settumst við Rangæingar að spilum á Heimalandi og lékum 2. umferð í Samverkstvímenningnum.   Eins og menn muna voru veitt vegleg bjórverðlaun í 1. umferðinni, viku fyrr.   Formaðurinn og Tottenhamtrukkurinn, sem fengu verðskuldað vænan skerf af verðlaunafénu það kvöld, virtust rykaðir fyrir vikið og enduðu 3ju neðstir.   

Skipstjórinn bauð hins vegar makker sínum, hænsnabóndanum, upp í dans og stigu þeir félagar hægan skipstjóravals í byrjun en hertu svo á og skiptu yfir í fjörugan polka.   Að endingu voru þeir félagar komnir í tjúttið og tjúttuðu í mark á 64,3% skori.  Næstir á eftir urðu vertinn og fjárhirðirinn með 60,4% skor.  

Spilin og úrsltin má sjá hér og stöðuna í Samverkstvímenningnum eftir 2 kvöld hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar