Rangæingar -- Laufásinn og páskaeggið

laugardagur, 26. mars 2016

Sl. þriðjudag komum við Rangæingar saman til að leika okkar árlega páskaeggjabarómeter.  Til leiks mættu 13 pör og leikinn var Monrad - barometer, 28 spil.   Mótið styrkir byggingafyrirtækið Krappi ávallt og gefur myndarleg páskaeggjaverðlaun.

Mótið var jafnt og spennandi, allt þar til lokin.  Lungann úr kvöldinu sátu Moldnúpsvertinn og Skógabóndinn keikir í efsta sæti og tóku á móti hverju áskorendaparinu á fætur öðru en sendu þau særð niður í miðjan sal aftur.  En enginn má við margnum og á endanum þraut drengina örendið og skottuðust sjálfir niður í miðjan sal og fóru þar með á mis við öll páskaegg.

Strandamaðurinn sterki og Héraðshöfðinginn áttu gott kvöld og komu í mark með glæsilegt skor,eftir varfærna byrjun, ein 67,1%. Fengu þeir að launum stórglæsieg páskaegg,  Næstbestir þetta kvöld reyndust Sýslumannsfrúin síkáta og vinnumaðurinn á Sýslumannssetrinu, með 59,6% skor.   Þeir fengu sérlega glæsileg páskegg að launum.   Þriðju inn, þrátt fyrir áunna og verðskuldaða yfirsetu í 4ðu umferð, komu svo Eyþór og Björn með 55,4% skor og fengu þeir einkar glæsileg páskaegg að launum.   ´

Hart var barist um fjórða og síðasta sætið sem veitti að launum glæsilegt páskaegg.    Í síðustu setu mættu Ægissgíðugoðarnir löskuðu hestamannaparinu en Jói G. fótbrotnaði illa við uppvaskið nýverið og sat því með hann beinstífan allt kvöldið, altsvo þann fótinn sem er í gifsi.  

Víkur nú sögunni að spili 28, síðasta spilinu í mótinu.   Ægissíðugoðinn sat í vestur og eins og goða er siður þykir honum vænt um ásana og lætur þá því treglega af hendi.  Því var það að hann hafði í tvígang tækifæri til að senda laufásinn úr húsi til góðra verka og sækja eiganda sínum páskaegg en lét það ekki eftir sér og fór á endanum heim með hann en páskaeggjalaus fyrir vikið, þar sem Jói og mr. Ólafsson fengu þar með hreinan topp í spili 28.  Jöfnuðu þar með Ægissíðugoðana að stigum.  Þar sem þer unnu þar með innbyrðissetuna fóru þeir heim með páskeggið en laufásinn fór heim á Ægissíðu í stað páskeggsins.

Úrslit og spil má sjá hér 

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar