Rangæingar -- Djúpir miðjumenn

miðvikudagur, 30. mars 2016

Sl. þriðjudag lékum við Rangæingar 3ju umferð af 5 í Samverkstvímenningnum.  Til leiks að Heimalandi mættu 14 pör og léku 28 spil.   Lengi kvölds sátu strákurinn og stelpan í efsta sæti en svo gerðu fleiri tilkall til toppsætins, komu þangað og fóru svo jafnharðan þaðan aftur.   Það var ekki fyrr en eftir lokaumferðina sem nafn sigurvegaranna birtist á toppnum.   Þeir höfðingjar og heiðursmenn Elli og Kalli, sem verið höfðu djúpir á miðjunni allt kvöldið, geystust þá upp völlinn og tylltu sér á toppinn með 57,7% skor.   Strákurinn (1963) og stelpan (1933) enduðu svo öðru sæti með 55,4% skor en þriðju urðu drengirnir Torfi og Diddi með 54,4% skor.

Úrslitin og spilin má sjá hér og stöðuna í Samverkstvímenningnum, eftir 3 kvöld af 5 hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar