Vélasalan er Reykjanesmeistari 2016

laugardagur, 20. febrúar 2016

Reykjanesmótið í sveitakeppni 2016 var spilað nú um helgina. Átta sveitir tóku þátt, þar af ein gestasveit, þannig að sjö sveitir kepptu um sex sæti í undanúrslitum Íslandsmótsins 2016. Sveit Sverris Þórissonar sigraði í svæðakeppninni en sveit Vélasölunnar sem varð í öðru dæti er hinsvegar Reykjanesmeistari þar sem efsta sveitin var skipuð  spilurum utan Reykjaness.

Með Sverri spiluðu Haraldur Ingason, Þórir Sigursteinsson, Jón Þorvarðarson, Gísli Steingrímsson og Gabríel Gíslason.

Reykjanesmeistararnir heita Bernódus Kristinsson, Ingvaldur Gústafsson, Ragnar Björnsson, Júlíus Snorrason og Eiður Mar Júlíusson

HEIMASÍÐA MÓTSINS

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar