Rangæingar -- Veðrabrigði
Enn takast menn og konur á við spilaborðið á Heimalandi, heimavelli okkar Rangæinga. Sl. þriðjudagskvöld var leikin 5. umferð af 7 í sveitakeppni félagsins. Og skjótt skipast veður í lofti.
Mikið flug var í impum og þó hvergi eins og í leik toppsveitar Efstu-Grundar manna við drengina frá Neðri-Dal, þar sem 160 impar fuku undan sterkum vindum um borðin tvö í 28 spilum. Efstu-Grundar menn leiddu mótið þegar umferðin hófst og hugðust auðvitað styrkja stöðu sína á toppnum. En heldur snerust vopnin í höndum þeirra og þeger imparykið loks settist hafði drengjasveitin í Neðra-Dal unnið fullnaðarsigur 20-0. Er þetta fyrsti leikurinn sem fer svo illa, nú eða svo vel eftir því hvaða augum menn líta silfrið. Við þessi úrslit sigu Efstu-Grundar menn niður í 4. sæti en peyjarnir úr Neðra-Dal leysa þá af á toppnum. Minnir uppganga Neðra-Dals drengja á upprisu Leicester, þar sem sveitin sat í fallsæti eftir 2 umferðir líkt og Leicester fyrir sléttu ári, en er nú komin á toppinn.
Þá náðu Gunnarshólmamenn loks vopnum sínum sem virtust framan af móti vera með öllu týnd. Sýndist mönnum að eina áhaldið sem eftir væri í vopnabúri sveitarinnar væri bogi Gunnars á Hlíðarenda, en strenglaus. Þó Magnus Halldórsson hafi komið í afleysingar þetta kvöld er hann ekki aflögufær um lokka, fremur en skrásetjari, svo trúlegra er að atgeir Gunnars hafi komið í leitirnar, fremur en lokkur hafi fundist í bogann þetta kvöld. Varmahlíðarmenn áttu ekki von á svo kröftugum atlögum frá Gunnarshólmamönnum, atlögurnar komu þeim algjörlega í opna skjöldu. Endaði þessi hólmganga þannig að sveitirnar höfðu sætaskipti í heiðurssætinu og rekur Sýslumannsfrúin nú lestina með sauði sína.
Veður hafa verið hörð í Rangárþingi í vetur, sem víðar á landinu. Skáldinu fannst impaflugið við borðin líkjast helst snörpum veðrabrigðum og mælti:
Í Neðra-Dal var núna bjart
og nokkuð létt sú glíma.
Á Efstu-Grund var útlit svart,
aldrei sást þar skíma.
Í Gunnarshólma góð var tíð,
hjá góðbændunum sprækum.
En volgnaði ekki í Varmahlíð
og vatnið fraus í lækjum.
Úrslit og stöðu í sveitakeppninni má sjá hér. Spil og Butler úr fyrri hálfleik hér og þeim seinni hér Staðan í Butlernum er svo hér