Rangæingar -- Að segja eða segja ekki 3 grönd
Skrásetjari segir sínar farir ekki sléttar úr 2. umferð sveitakeppninnar sem leikin var þriðjudaginn 2. febrúar sl. Þar leiddi skrásetjari sína menn í ógöngur og til háðulegrar útreiðar gegn, að haldið var, löskuðu prestakallaliðinu frá Stóru-Mörk. Til liðs við þá Stóru-Markarmenn var genginn Magnus Halldórsson, í forföllum meðhjálparans. Magnus er þjóðþekktur fyrir sín þrumuþrjúgrönd en hafði fengið föðurleg ráð frá prestinum fyrir leik um að 3 nt væru ekki endilega alltaf heppileg. Magnus meldaði því lítið og varlega. Fór með löndum og kom þannig andstæðingum sínum algjörlega í opna skjöldu. Menn áttu bara ekki von á þessu enda hefur Magnus sjaldan farið um svo hljóðlega og lýsti sjálfum sér einhvern tíma þannig:
Á blautum skóm, hinn breiða veg
bísperrtur hef gengið.
Og enginn hefur oftar en ég
ökuréttindi fengið!
Því voru Stóru-Markar menn til alls líklegir í umferð 3 sem leikin var sl. þriðjudag. Hins vegar var Magnús búinn að finna 3ja granda miðann á ný og því gekk verr.
Sveitakeppnin hefur þróast í tvær deildir, þannig að fjórar sveitir eru býsna jafnar á toppnum og aðrar fjórar býsna jafnar á óæðri endanum. En ekki þarf nema ein góð úrslit, nú eða vond, til að sveitir færist á milli deilda.
Spil og butlerárangur úr fyrri hálfleik í umferð 2 má sjá hér og úr þeim seinni hér. Hér er svo fyrri hálfleikur í umferð 3 og sá seinni hér. Úrslit og staðan í sveitakeppninni eftir umferð 3 er svo hér og staðan í butlernum hér