Patton sveitakeppni í BR að hefjast 5. janúar

mánudagur, 4. janúar 2016
Fjögurra kvölda Patton sveitakeppni að byrja í BR á morgun, 5. janúar!  Rúnar Einarsson getur aðstoðað við myndun sveita, síminn hjá honum 820-4595. Ágætt að mæta tímanlega og/eða skrá sveit fyrirfram á br@bridge.is.

Eflaust þekkja ekki allir fyrirkomulagið en þetta hefur aðallega verið spilað á Blönduósi og svo eitthvað í útlöndum :) Þetta er sambland af venjulegri sveitakeppni og board a match. Gerum ráð fyrir 10 spila leikjum(fer þó eftir þátttöku).
1- Leikur gerður upp í impum og fundin út vinningsstig (20-0 skali)
2- Board a match stig fundin út, 2 sigur í spili, 1 ef spil fellur, 0 ef tap. Þetta er í raun annar 20-0 skali fyrir 10 spila leik.
3- Vinningsstig og board a match stig lögð saman. Mest hægt að vinna hvern leik 40-0.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar