Ólafur og Gunnar Björn HSK meistarar í tvímenning
HSK mótið í tvímenning var haldið fimmtudaginn 7. janúar sl. í Selinu á Selfossi. Mjög góð þátttaka var í mótinu eða 20 pör, en það þýddi að það var fullt hús. Spilað var um silfurstig auk þess sem mótið taldi til stiga í stigakeppni HSK árið 2016. Þá var einnig veittur í fyrsta skiptið nýr farandbikar í mótinu, en gefandi bikarsins var Vélaverkstæði Þóris á Selfossi, og færir briddsnefnd HSK honum bestu þakkir fyrir.
Sigurvegarar urðu Ólafur Steinason og Gunnar Björn Helgason með 59,7% skor. Þeir spiluðu fyrir Ungmennafélag Selfoss. Í öðru sæti urðu Kristján Már Gunnarsson og Gunnlaugur Sævarsson með 58,6% skor. Þeir spiluðu einnig fyrir Ungmennafélag Selfoss. Í þriðja sæti urðu Viðar Gunngeirsson og Pétur Skarphéðinsson. Þeir spiluðu fyrir Golfklúbbinn Flúði.
Lokastöðuna má sjá á þessari síðu. Nú hefur verið bætt úr því að á síðunni sjást öll spil mótsins.
Næsta mót hjá Bridgefélagi Selfoss er þriggja kvölda butlertvímenningur sem hefst fimmtudaginn 14. janúar. Skráning á þessari síðu. Þá má minna á Suðurlandsmótið í sveitakeppni sem verður spilað á Heimalandi helgina 16. - 17. janúar nk. Skráning á þessari siðu.