Reykjavíkurmótið í sveitakeppni 15.-17. janúar 2016
fimmtudagur, 3. desember 2015
Reykjavíkurmótið í sveitakeppni 2016.
Ákveðið hefur verið að breyta fyrirkomulagi Reykjavíkurmótsins í
sveitakeppni á næsta ári. Stjórn BR gerð óformlega skoðanakönnun á
spilakvöldi fyrir nokkru síðan og niðurstöðurnar voru afgerandi. 33
af 37 vildu að mótið yrði spilað á einni helgi. Því verður mótið
með því sniði á næsta ári.
Spilað verður helgina 15.-17 janúar 2016. Skráning
á br@bridge.is og hjá BSÍ í síma
587-9360. Nánar um mótið síðar. Kveðja, stjórnin.