Rangæingar -- Jólasveinar einn og átta

miðvikudagur, 16. desember 2015

Enn áttum við Rangæingar erindi á Heimaland til að setjast að spilum.  Í þetta sinn til að leika 4. umferð af 5 í Butlertvímenningi félagsins.  Þátttökumetið þetta haustið var slegið, þar sem 16 pör mættu til leiks.

Æskan átti kvöldið og reyndist skrásetjari forspár þegar hann spáði því í síðustu viku að stutt væri í að Eysteinn Eiríksson, 24ra ára Kanastaðakúreki næði í sín fyrstu bronsstig.   Þeir Kanastaðafeðgar náðu 3. sæti, með 224 impa, en rétt er þó að nefna að Eiríkur, faðir hans og makker, hefur verið með allra besta móti af gigtinni upp á síðkastið og hægðirnar verið all góðar að sögn.   

Ekki er síður æskuþróttinum fyrir að fara hjá Ægissíðungunum Ægi og Svavari, sem unnu kvöldið með miklum yfirburðum, rótuðu inn 330 impum.    "Hann hafði gott af því að komast aðeins í jólabjórinn kallinn" sagði Ægissíðugoðinn hróðugur þegar hann virti fyrir sér úrslit kvöldsins en sjálfur þurfti goðinn að bregða sér í Hveragerði nu á dögunum og sendi Svavar til Köben á meðan, hvar Svavar sat silkimjúkur á Hvids vinstue, líkt og Jónas Hallgrímsson forðum, og las kerfið meðan Ægir gæddi sér á stöku salatblaði á heilsuhælinu í Hveragerði.   Á milli þeirra, í 2. sæti urðu svo prestakallarnir með 240 impa.   Aðrir fengu minna og verða ekki færðir í frásögur hér en þeirra er þó getið  í ítarefni á neðangreindum tenglum.

Spil og úrslit hér og stöðuna eftir 4 kvöld hér

Þar sem stöku menn er farnir að raula um jólasveina einn og átta um þessar mundir, og þá oftast undir gömlu Hólastemmunni, fannst skáldinu upplagt að færa í ljóð undir því lagi, bögur um úrslit kvöldins.     

Þeir Kanastaðamenn komu sterkir inn, eins og áður sagði, en hér áður fyrr merkti orðið "kani" einfaldlega naut og þótti vissara að hafa gott tjóðurband á nautum. Engin bönd héldu hins vegar þeim feðgum frá Kanastöðum sl. spilakvöld, og tóku þeir annað sætið með glæsibrag.

(Lag:  Jólasveinar, einn og átta)

Enginn skyldi upp þá spana,

svo ekki bresti strengirnir.

Talsvert meira kunna en kana,

Kanastaðadrengirnir. 

    

Skáldinu sýndist, svona fljótt á litið, að hæsti meðalaldur pars þetta kvöld, væri hjá þeim Svavari Hauks og Þórhalli Ægi, en ekki var að sjá nein ellimerki á þeim köppum á þessu kvöldi. 

(Og aftur undir sama lagi)

Ellimerkjum öllum hentu,

óðu slemmur kaldir í.

Og í fyrsta enda lentu,

ekkert höfðu fyrir því.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar