Rangæingar -- 2007
Um árabil höfum við Rangæingar att kappi við Hrunamenn einu sinni á ári. Framan af skiptust liðin á að fagna sigri en frá árinu 2008 hafa Hrunamenn mátt lúta í gras og bikarinn átt sinn fasta samastað á Heimalandi, heimavelli okkar Rangæinga. Það má því segja að fleira hafi hrunið árið 2008 en íslenska bankakerfið.
Sl. þriðjudagskvöld skunduðum við Rangæingar á spilavöll Hrunamanna að hótel Flúðum. Vorum sigurvissir nokkuð og höfðum í flimtingum í rútunni á leiðinni upp eftir að óþarft væri nú að drösla bikarnum með. En dramb er falli næst! Að vísu stefndi í árviss úrslit í hálfleik, því Rangæingar voru 15 vinningsstigum yfir. Brugðu heimamenn þá á það ráð að opna barinn og mátti með góðum vilja greina í seinni hálfleik hvort liðið hafði komið í rútu og hvort liðið kom á einkabílum. Okkur Rangæingum leið vel á hótelinu og æ meiri værð færðist yfir okkur eftir því sem sló á þorstann. Að leikslokum fór svo að Hrunamenn höfðu sigur með 107 vinningsstigum gegn 102 stigum okkar Rangæinga.
Úrslit á einstökum borðum urðu annars þessi:
Hrunamenn Rangæingar
Borð 1: 11 - 19
Borð 2: 20 - 10
Borð 3: 24 - 6
Borð 4: 11 - 19
Borð 5: 5 - 25
Borð 6: 11 - 19
Borð 7: 25 - 4
Ártölin fóru ekki fram hjá hirðskáldi okkar Rangæinga, sem mælti að leikslokum um langþráðan bikarsigur Hrunamanna:
Niðurstöðum allvel undu
og þá tekur gleðin völd.
Loksins af sér hruni hrundu,
Hrunakappar nú í kvöld.
Við Rangæingar erum auðvitað svolítið laskaðir eftir þessa Bjarmalandsför en munum æfa stíft í vetur, a.m.k. einu sinni í viku!
Við þökkum vinum okkar í uppsveitum Árnessýslu fyrir góðar móttökur og skemmtilegt spilakvöld. Við hlökkum til að taka á móti þeim að ári!