Björn Snorrason og Helgi Grétar Helgason Suðurlandsmeistarar.

laugardagur, 14. nóvember 2015

Eftir frábæran plokkfisk í Skallanum á Selfossi hélt sá er þetta skrifar að Flúðum og renndi þar í gegn Suðurlandsmótinu í tvímenning. Fjórtán pör mættu til leiks og spiluðu frá kl. sjö og fram undir eitt eftir miðnætti. Suðurlandsmeistarar urðu Helgi Grétar Helgason og Björn Snorrason með 60,2% skor. Öll úrslit má sjá hér. 

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar