Rangæingar -- Heimtur af fjalli
Sl. þriðjudagskvöld komu menn og kona í Rangárþingi saman að Heimalandi til spilafundar. Sæmilega heimtist af fjalli þetta árið og eru 11 pör komin á hús en a.m.k 4 pör eru þó enn óheimt. Búist er við þeim fyrir október lok, enda sést til þeirra.
Fé og spilarar koma vænir af fjalli þetta haustið og virðist fallþungi í stólana heldur betri en í fyrra.
Það flljúga engir Hollendingar lengur, eins og knattspyrnuáhugamenn vita, en formaður vor og Tottenhamtröllið flugu hins vegar fugla hæst og svifu tignarlega í mark með 66,3% skor. Í 2. sæti, eftir að hafa fatast flugið í restina, urðu peyjarnir og framsóknarforkólfarnir, Kalli og Elli með 60,0% skor. Í 3ja sæti, á hálfgerðu lágflugi, urðu svo íhaldspungarnir Sigurður og Torfi með 59,4% skor.
Aðrir magalentu!
Úrslit og spil má sjá hér