Rangæingar -- Flokkapólitík
Sl. þriðjudagskvöld settust Rangæingar að spilum að vanda. Með í för að Heimalandi voru tveir bjórkassar, hvers innihald var notað til verðlaunaveitinga það kvöldið. Til leiks mættu 11 pör og léku 28 spil (monrad) Keppt var í nokkrum flokkum og urðu sigurvegarar í hverjum flokki eftirtaldir:
Flokkur Par Skor Verðlaun
Nýliðaflokkur: Hjalti - Logi, 39,6% Tveir bjórar á mann
Heiðurssætið: Elli - Kalli 40,6% Einn bjór á mann
Hótelstjóraflokkur: Óli - Runólfur 45,8% Einn bjór á mann
Prestaflokkur: Halldór - Kristján 47,8% Einn bjór á mann
Tottenhamsætið: Jói - Svavar 48,4% Einn bjór á mann
Öldungaflokkur: Ægir - Svavar 49,5% Hálfur bjór á mann
Sýslumannsflokkur: Siggi - Sigurjón 50,0% Einn bjór á mann
Kvennaflokkur: Eiríkur - Silla 53,1% Tveir bjórar á mann
3. sæti: Bjössi - Maggi 54,9% Þrír bjórar á man
2. sæti: Örn - Birgir 55,8% Fjórir bjórar á mann
1. sæti: Sigurður - Torfi 62,5% Sjö bjórar á mann
Sérstök heiðursverðlaun: Eiríkur Davíðsson Einn aukabjór á hann.
Eins og glöggir lesendur sjá var hart barist um verðlaun í hverjum flokki. Enn gleggri lesendur sjá líka af verðlaunamagni í einstökum flokkum að Rangæingum þykir einkar vænt um born, konur og Eirík á Kanastöðum. Einhverjir kunna ennfremur að halda, af óskýrum og svolítið óreglulegum lóðréttum línum í dálkunum hér að ofan, að skrásetjari sé þegar búinn að innbyrða öll verðlaunin sín. Svo er ekki!
Úrslitin og spilin má finna á hér