Vanir - óvanir hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar

fimmtudagur, 24. september 2015
Mánudaginn 28. september verður spilaður hefðbundinn tvímenningur hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar, en óvanir spilarar eru boðnir sérstaklega velkomnir.
Allir vanir spilarar eru hvattir til að bjóða vini, vinnufélaga, fjölskyldumeðlimi…… eða hverjum þeim sem kunna grundvallaratriði í bridge, en hafa ekki lagt stund á reglulega spilamennu í bridgefélagi.
Allir óvanir, og vanir sem spila við óvana, spila frítt.Léttar veitingar í boði hússins og glæsileg verðlaun.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar