Fyrsta spilakvöld nýliða eftir sumarfrí 3. september

þriðjudagur, 1. september 2015
Byrjum aftur með spilakvöldin 3. september og verðum alla (eða velflesta) fimmtudaga fram að jólum. Spilað í Síðumúla 37 kl. 19.

Hægt er að mæta með makker eða þá stakur/stök og Ómar spilastjóri spilar sjálfur eða reddar makker.
Gott að mæta með kerfisblöðin en annars hægt að prenta þau út og tilvalið að spyrja ráða.
Spilagjald 1000 kr. Kaffi innifalið. 
Og Prins póló á 100 kr (eða 0 kr. ef ekkert klink).
Úrslit og myndir á Facebooksíðu Bridgefélags nýliða.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar