Rangæingar -- "...aldrei segja prestar pass"
Sl. þriðjudag settust menn, og báðar stelpurnar, að spilum á Heimalandi og léku 4. og næstsíðustu umferð í Samverkstvímenningnum. Til leiks mættu 14 pör. Eftir dapurt gengi í vetur og krísufund í dymbilvikunni þar sem orsaka eyðimerkurgöngunnar var leitað, hafa prestakallarnir farið mikinn, enda fannst bilun í sagnkerfinu. Þeir unnu í gærkvöldi næsta örugglega með 61,0% skori. Næstir í mark urðu þeir vinir og fóstbræður Sigurður sýslumannsfrú og Sigurjón með 57,7% skor, enda hvergi veikur hlekkur í sagnkerfinu hjá þeim (1 lauf - 3 grönd). Þriðju í mark urðu svo flokksbræðurnir og nafnarnir Magnús yngri og Magnús eldri með 55,1% skor. Aðrir hafa ekki enn fundið veilurnar í sínu sagnkerfi og enduðu því neðar í töflunni.
Páskamót félagsins (Krappamótið) var svo spilað þriðjudaginn 31. mars sl. Til leiks mættu 13 pör og börðust um fjölda páskaeggja, enda veitt verðlaun í hinum ýmsu flokkum. Glataði sonurinn snéri heim, nú í fylgd með fullorðnum. Þeir drengir gerðu góða ferð austur yfir Þjórsá og náðu efsta sætinu með 64,6% skor, sjónarmun á undan prestaköllunum, sem urðu í 2. sæti með 64,3% skor. "Yfirsetan bjargaði okkur, kallinn hafði gott af hvíldinni eftir ferðalagið, enda sofnaði hann ekkert í bílnum" sagði Helgi kátur að leikslokum og braut sér mola af páskaegginu. Þriðju í mark urðu svo öðlingarnir Örn og Runólfur með 56,8% skor. Um skor annara skal ekki fjölyrt en alltaf er nú notalegt að spila sig inn í yfirsetu!
Skáldið sá prestakallana lyfta verðlaunum og bæði kvöldin og mælti í gærkvöldi:
Þaðan drógu þyngsta hlass,
þá mun ekkert buga.
Því aldrei segja prestar pass
og prestaköllin duga!
Úrslitin og spilin frá í gær má sjá hér og stöðuna í Samverkstvímenningnum eftir 4 kvöld hér
Úrslitin og spilin úr páskamótinu (Krappamótið) má sjá hér