Rangæingar -- Strákar í stuði

miðvikudagur, 11. mars 2015

Sl. þriðjudag hófum við Rangæingar leik í Samverkstvímenning félagsins, fimm kvölda keppni þar sem fjögur bestu kvöldin gilda til úrslita.  Til leiks mættu 14 pör og voru spiluð 28 spil að vanda með Monrad-fyrirkomulagi.   Útlit er fyrir rafmagnaða spennu í mótinu en þó olli skortur á rafmagni okkur nokkrum vandræðum og töfum þetta fyrsta kvöld, þar sem rafmagnið fór af í um 20 mínútur.  

Strákarnir Sigurður og Torfi eru í stuði um þessar mundir og enduðu efstir með 63,1% skor.  Næstir í land voru peyjarnir Elli og Kalli með 60,4% skor og þriðju í mark Diddarnir Torfi og Diddi með 58,3% skor.

Úrslit og spil má sjá hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar