Rangæingar -- Strákar í stuði
miðvikudagur, 11. mars 2015
Sl. þriðjudag hófum við Rangæingar leik í Samverkstvímenning félagsins, fimm kvölda keppni þar sem fjögur bestu kvöldin gilda til úrslita. Til leiks mættu 14 pör og voru spiluð 28 spil að vanda með Monrad-fyrirkomulagi. Útlit er fyrir rafmagnaða spennu í mótinu en þó olli skortur á rafmagni okkur nokkrum vandræðum og töfum þetta fyrsta kvöld, þar sem rafmagnið fór af í um 20 mínútur.
Strákarnir Sigurður og Torfi eru í stuði um þessar mundir og enduðu efstir með 63,1% skor. Næstir í land voru peyjarnir Elli og Kalli með 60,4% skor og þriðju í mark Diddarnir Torfi og Diddi með 58,3% skor.
Úrslit og spil má sjá hér