Rangæingar -- Björninn!!
Sl. þriðjudagskvöld komu Rangæingar enn saman að Heimalandi og léku 3. umferð í Samverkstvímenningnum. Til leiks mættu 14 pör og léku að vanda 28 spil með Monrad-fyrirkomulagi.
Björninn var þó ekki unninn þetta kvöld, því Björninn vann en naumlega þó. Mjólkurbílstjórarnir enduðu með 58,3% skor. Næstir inn urðu svo hetjurnar úr sveitakeppninni, Diddarnir Torfi og Diddi, með 57,7% skor og þriðja í mark kom svo hún Silla okkar með Eirík sinn bónda með sér, þau voru með 57,1% skor.
Skáldið hefur legið sárþjáð í flensu lungann úr árinu og því er ekki visa frá honum í þetta sinn. Andinn hefur bara ekki komist að honum fyrir ólofti af hósta og iðrablæstri. Skáldið kveðst þó á batavegi og lofar vísu í næstu viku.
Úrslitin og spilin má sjá hér og stöðuna í Samverkstvímenningnum að loknum þremur kvöldum af fimm hér