Reykjanesmótið 21-22 febrúar TÍMATAFLA + ALLIR LEIKIR

fimmtudagur, 19. febrúar 2015

ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ FYLLA Í YFIRSETUNA.  Sveitin Úlfurinn spilar þá við Jensen í fyrstu umferð.

Reykjanesmótið í sveitakeppni fer fram helgina 21-22 febrúar n.k. Spilað verður í Félagsheimilinu Mánagrund sem er við Miðnesheiðarveg, þjóðvegur 423. Beygt er til hægri úr hringtorginu við Flugstöðina og síðan til vinstri á næsta hringtorgi.

Mótið hefst kl. 11:00 á laugardeginum og kostar kr. 24.000,- á sveit. Skráning hjá Lofti s. 897-0881 og thorduring@gmail.com í síðasta lagi fimmtudaginn 19 feb.   Skráningarlisti     Dagskráin  ALLIR LEIKIR

Reykjanes á fimm sveitir áfram og auk þess fyrstu og fimmtu varasveit þar sem Reykjavík nýtti ekki allan sinn kvóta. Þannig komast sjö sveitir áfram úr þessu móti.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar