Rangæingar -- "Loksins komst hún Stína í stuð"
laugardagur, 7. febrúar 2015
Sl þriðjudagskvöld var leikin 4. umferðin í sveitakeppni félagsins. Varmahlíðarvinir unnu ekki eins stóran sigur og oftast áður, enda gyrtu Grundargæjar sig í brók í síðari hálfleik, eftir afleitan fyrri hálfleik. Keppnin er því enn á góðu lífi.
Hirðskáldinu fannst ekki mikil tíðindi í þessu sigri Varmahlíðarvina en veitti góðum sigri Tómthúsfólksins þess meiri athygli:
Uppskorið var eftir puð,
enginn harmagrátur.
Loksins komst hún Stína í stuð
og Stjáni fylgdi kátur.
Úrslit og stöðu í sveitakeppninni má sjá hér Úrslit og spil fyrri hálfleiks hér og þess seinni hér Staðan í Butlernum að loknum þremur umferðum er svo hér