Rangæingar -- "Illa börðu Ægissíðumenn"
Sl. þriðjudagskvöld komu spilarar úr Rangárþingi enn saman að Heimalandi undir V-Eyjafjöllum, á heimavelli okkar Rangæinga. Tilefnið nú var 6. og næstsíðasta umferðin í sveitakeppni félagsins. Þau merku tíðindi urðu að Varmahlíðarvinir töpuðu loks leik þegar þeir lágu fyrir Moldnúpsmönnum. Á sama tíma unnu Grundargæjar og Dalsdrengir sína leiki og nálguðust því Varmahlíðarvini heldur, og eins og vertinn í Moldnúpi man svo vel frá í fyrra, þá getur allt gerst í síðustu umferð.
Skáldið hefur fylgst vel með góðu gengi Varmahlíðarvina og dáðst að þeim í ræðu og riti. Honum fannst þeir fara illa að ráði sínum og bregðast sér, og öðrum aðdáendum, með slökum leik. Af því tilefni mælti skáldið:
Þeir sem báru oft af oss,
enda var þá gaman,
ventu núna kvæði í kross
og klúðruðu öllu saman.
Þó skáldið sé einkar hógvært að upplagi og eðlisvarkárt í meira lagi, fór gott eigið gengi þetta kvöld ekki framhjá honum. Mætti ákveðinn til leiks og hafði þetta að segja að leikslokum um vestfirskar kveðjur sinna manna:
Eins þó hækki sólin senn,
sagnir gerast villtar.
Illa börðu Ægissíðumenn,
óðir Grundarpiltar.
Úrslit og stöðu í sveitakeppninni má sjá hér. Butler og spil úr fyrri hálfleik hér og þeim seinni hér. Staðan í Butlernum er svo hér.