Akureyrarmeistarar í sveitakeppni: mývatnhotel.is

þriðjudagur, 10. febrúar 2015

Þá er lokið Akureyrarmótinu í sveitakeppni og það er óhætt að segja að það réðst ekki fyrr en í lokin.
Sveit Old boys vann báða sína leiki nánast hreint en sveit mývatnhotel.is vann einnig sína þó ekki eins stórt. Það dugði samt og Akureyrarmeistarar 2015 eru því Kristinn Þórisson​, Björn Þorláksson​, Guðmundur H Halldórsson​, Reynir Helgason og Frímann Stefánsson​!

Butlerkóngur varð Kristinn Þórisson með 1,43 impa að meðaltali í spili.

Allt um mótið má sjá hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar