Svæðamóti NEy lokið
sunnudagur, 11. janúar 2015
Eftir 120 spil um helgina er ljóst hvaða tvær sveitir komust áfram í undanúrslitin. Mikla yfirburði hafði sveit mývatnhotel.is með 17 stig að meðaltali í leik en í henni spiluðu Frímann Stefánsson, Reynir Helgason, Björn Þorláksson og Guðmundur Halldórsson. Nokkrar sveitir bitust um 2.sætið en með góðum lokaspretti varð það sveit Antons Haraldssonar sem því náði.
Lokastöðuna og butlerinn má sjá hér