Suðurlandsmótið í sveitakeppni-úrslit
Sveit Sparisjóðs Siglufjarðar sigraði af öryggi í
Suðurlandsmótinu í sveitakepnni sem spilað var um helgina á
Hvolsvelli.
Í sveitinni spiluðu Birkir Jónsson, Jón Sigurbjörnsson, Ljósbrá
Baldursdóttir og Matthías Þorvaldsson.
Í öðru sæti voru Sunnlendingar af ýmsum stærðum og gerðum en hún
varð jafnframt Suðurlandsmeistari. Í þeirri sveit spiluðu Gunnar
Björn Helgason, Sigfinnur Snorrason, Ólafur Steinason, Vigfús
Pálsson og Helgi Bogason.
Í þriðja sæti var sveit TM Selfossi og þar spiluðu Kristján Már
Gunnarsson, Gunnlaugur Sævarsson, Guðmundur Þór Gunnarsson og Björn
Snorrason.
Efstur í bötlernum varð Vigfús Pálsson en skammt á eftir honum urðu
Birkir Jónsson og Jón Sigurbjörnsson.
11 sveitir tóku þátt í mótinu, þar af 3 gestasveitir, en 6 sveitir
unnu sér rétt til að spila í undankeppni Íslandsmóts.
Heimasíða mótsins hér