Rangæingar -- Vinahót
Og sveiitakeppnin heldur áfram. Í gærkvöldi var leikin önnur umferð. Sýslumannsfrúin í Varmahlíð og aðrir Varmahlíðarvinir voru ekkert sérlega vinalegir við andstæðinga sína, Dalsdrengina, í gær. Tóku Dalsdrengina á annað hnéð og flengdu og settust í leiðinni sjálfir á toppinn en skildu við Dalsdrengina á botninum.
Bæði pör Varmahlíðarvina áttu afar góðan leik og urðu í 1. og 3. sæti Butlersins. Aðrir leikir fóru að ósk spilastjóra, því sem næst jafntefli. Dalsdrengir eru hér með farnir í æfingabúðir en eru væntanlegir tvíefldir til leiks í næstu viku.
Úrslit og spil í fyrri hálfleik má sjá hér og í þeim seinni hér. Úrslit og stöðuna í sveitakeppninni má sjá hér og stöðuna í Butlernum hér.