Rangæingar -- "Stöðugt þessir garpar græða"

fimmtudagur, 29. janúar 2015

Sl. þriðjudagskvöld settust Rangæingar að spilum að vanda og nú til að leika 3ju umferð í sveitakeppni félagsins.  Varmahlíðarvinir fara mikinn og leggja hvern andstæðinginn á fætur öðrum að velli. Engu er líkara en spilarar í Rangárþingi, upp til hópa, séu orðnir vinir Varmahlíðar.  Hirðskáldið er enda fullt aðdáunar á þessum drengjum:

Stöðugt þessir garpar græða

þó gerist sagnir villtar.

Villulaust þeir veginn þræða,

Varmahlíðarpiltar.

Á hinn bóginn fannst skáldinu árangur sinn og sinna manna ekki til útflutnings, hálfgerður uppskerubrestur orðinn á harðbalanum:

Héldu á lofti hundunum,

háspil ekki nýttu,

Gæjarnir af Grundunum,

á grasinu sér snýttu.

Úrslit og stöðu í sveitakeppninni má sjá hér     Úrslit og spil fyrri hálfleiks hér og þess seinni hér    Staðan í Butlernum að loknum þremur umferðum er svo hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar