Rangæingar -- Teknir í....eehhhh.... fangið?

fimmtudagur, 27. nóvember 2014

Sl. þriðjudagskvöld komu framsóknarmenn og aðrir spilarar saman að Heimalandi til að leika 3ju umferð í 5 kvölda BUTLER-tvímenningi félagsins.   Spiluð voru 28 spil með Monrad fyrirkomulagi og mættu 13 pör til leiks. 

Skemmst er frá því að segja að okkar ástsæli formaðurog framsóknarforkólfur Bergur Pálsson og Tottenhamtröllið félagi hans hirtu efsta sætið þetta kvöld og komu í mark með 278 impa (imps across the field).   Næstir inn urðu latte-treflarnir Bjorn og Eyþór með 156,3 og þriðju sómadrengirnir Kalli og Elli með 131 impa.

Skáldinu okkar, Magnúsi Halldórssyni, fannst formaðurinn og Spursarinn fara mikinn, kannski heldur mikinn, og varð að orði:

Upphaflega óðu leðju

að aldagömlum bændasið

síðan bara sendu kveðju

og salinn tóku í ra.........eehh....fangið!

Þrátt fyrir að fara ekki mikinn og eiginlega bara mjög lítinn þetta kvöld, heldur skipstjórinn enn sjó í 5 kvölda keppninni og eru þeir félagar efstir í Butlernum með 660,7 impa skoraða.

Úrslit og spil má sjá hér  en stöðuna í Butlernum eftir 3 kvöld af 5 hér  (Athugið þó að 4 bestu kvöldin af 5 munu telja til úrslita)

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar