Rangæingar -- Góðir gestir í heimsókn en "Reynast harðdræg Rangæsk mið"
Sl. þriðjudag urðu fagnaðarfundir á Heimalandi, heimavelli okkar Rangæinga, þegar góðir gestir úr uppsveitum Árnessýslu komu í heimsókn. Í þessari árlegu sýslukeppni öttum við Rangæingar kappi við Hrunamenn í sveitakeppni og sendi hvort félag 6 sveitir til leiks. Úrslitin urðu þau að Rangæingar unnu sigur á 5 borðum af 6 og urðu heildarstigin 84,53 gegn 35,47, Rangæingum í vil. Hirðskáldi okkar Rangæinga, Magnúsi Halldórssyni fannst við Rangæingar gleyma gestrisni og gefa meira við kaffiborðið en við spilaborðið sjálft og mælti:
Reynast harðdræg Rangæsk mið,
ráðum grimmdar beita.
Þeir gleymdu nær þeim góða sið,
gestunum að veita.
Úrsltin í sveitakeppninni má sjá hér.
Til að krydda spilamennskuna og með tilbreytingu í huga var BUTLER árangur para reiknaður út og verðlaunaður sérstaklega með blautlegum verðlaunum í anda jólanna. Veitt voru fljótandi verðlaun fyrir efstu fjögur sætin, efsta sætið í kvennaflokki (önnur konan var reyndar skeggjuð og sagðist heita Baldur Garðarsson), fyrir minnsta mínusinn, fyrir að vera elstir og loks fyrir heiðurssætið að sjálfsögðu.
Efstir í BUTLERnum urðu fiskikóngarnir Torfi Sig. og Diddi. Magnúsi fannst þeir vel að sigrinum komnir og mælti:
Skiluðu drengir skori stóru,
skarplega hirtur margur slagur.
Þeir á kostum þarna fóru
og það heitir meistarabragur.
BUTLER-árangur para og spil í fyrri hálfleik má sjá hér, í seinni hálfleik hér og loks úrsltiin í BUTLERnum í heild hér