Bridgefélag Hafnarfjarðar-úrslit í Madeira tvímenningi

þriðjudagur, 11. nóvember 2014

Hulda Hjálmarsdóttir og Halldór Þorvaldsson sigruðu í 2ja kvölda Madeiratvímenningi BH en þau skoruðu 58 impa fyrra kvöldið. Fyrirkomulagið var bötlertvímenningur og betra skorið gilti.
Seinna kvöldið voru 2 pör efst og jöfn með 35 impa, Högni Friðþjófsson og Halldór Einarsson sem og Árni Már Björnsson og Guðmundur Aldan Grétarsson.
Næsta mánudag, 17. nóvember heldur áfram hraðsveitakeppni þar sem frá var horfið þegar Madeiragengið verður komið til baka. Nánar á heimasíðu BH

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar