Afmælishátíð B.A.

sunnudagur, 2. nóvember 2014

Í dag var frábær afmælishátið BA haldin en hún hófst á 24 para tvímenningi sem Kristján Þorsteinsson og Stefán Sveinbjörnsson unnu eftir harða baráttu. Þáttakan var framar vonum og ýmsir gamlir refir létu sjá sig.
Því næst var haldið upp á Strikið í veislumat og ræðumenn rifjuðu upp ýmislegt skemmtilegt úr sögu BA.
Þá var haldið aftur í spilasal, barinn opnaður og spilaður einmenningur á 9 borðum í tveimur riðlum. Best stóðu sig Reynir Helgason og Jóhannes Jónsson þar.
Við í BA erum þakklát fyrir daginn og vonum að baráttan framundan verði jafn skemmtileg :)

Heildarstaðan

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar