Afmælishátíð B.A.
sunnudagur, 2. nóvember 2014
Í dag var frábær afmælishátið BA haldin en hún hófst á 24 para
tvímenningi sem Kristján Þorsteinsson og Stefán Sveinbjörnsson unnu
eftir harða baráttu. Þáttakan var framar vonum og ýmsir gamlir
refir létu sjá sig.
Því næst var haldið upp á Strikið í veislumat og ræðumenn rifjuðu
upp ýmislegt skemmtilegt úr sögu BA.
Þá var haldið aftur í spilasal, barinn opnaður og spilaður
einmenningur á 9 borðum í tveimur riðlum. Best stóðu sig Reynir
Helgason og Jóhannes Jónsson þar.
Við í BA erum þakklát fyrir daginn og vonum að baráttan framundan
verði jafn skemmtileg :)