Rangæingar -- Landsliðsmenn?

miðvikudagur, 29. október 2014

Sl. þriðjudagskvöld komu Rangæingar að vanda saman að Heimalandi.   Ekki til að spila framsóknarvist, nema ef vera skyldi spilastjórinn, sem virðist liðtækari í vist en því göfuga spili BRIDGE, ef marka má spilamennsku hans þetta kvöldið.   

"Við spiluðum eins og landsliðsmenn"  sagði hróðugur hótelstjórinn og klappaði makker sínum á bakið.   Þeir félagar áttu enda stjörnukvöld og voru með yfir 71% skor lungann úr kvöldinu, allt fram undir það síðasta.   Heldur dró af þeim félögum í restina, enda komnir af léttasta skeiði, svo þeir enduðu með 61,1% skor.   Glæsilegt hjá þeim félögum, ekki síst í ljósi þess að þeir félagar komu til liðs við okkur um síðustu áramót og höfðu ekki spilað bridge um nokkurn tíma og aldrei saman fyrr en þá.   Næstir í mark komu öðlingarnir Örn og Birgir með 56,8% skor og þriðju urðu sýslumennirnir Sigurður Jakob og Sigurjón með 55,4%.   Af tillitssemi við spilastjóra verður þess ekki getið hér, hvar hann endaði.

Úrslit og spil má sjá hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar