Hrunamenn -- Dansað inn í tækniöldina

miðvikudagur, 1. október 2014

Ekki er vitað hvort dansað var í Hruna þriðjudagskvöldið 30/9 sl.   Hins vegar hittust Hrunamenn í félagsheimilinu á Flúðum þetta kvöld og dönsuðu inn í tækniöldina þegar vetrarstarf félagsins hófst með eins kvölds upphitunar- og tækniinnleiðingartvímenning.   

Félagið hefur nú búist nýmóðins tækjum og tólum og eru nú allir útreikningar rafrænir og búið að henda pennanum sem lengi var þarfasti þjónninn við útreikning úrslita.

13 pör mættu til leiks og spiluðu 24 spil með Monrad fyrirkomulagi. 

Úrslit kvöldsins og spil má svo sjá hér.

  

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar