Afmælisfagnaður B.A. og Hraðsveitakeppnin

þriðjudagur, 28. október 2014

Bridgefélag Akureyrar er jafn gamalt lýðveldinu, stofnað 1944, og varð því 70 ára í sumar!

Við munum halda upp á það með spilamennsku og mat laugardaginn 1.nóv. Stuttur tvímenningur verður frá 14- 17:30 og er í boði B.A. en svo er matur á Strikinu sem við styrkjum en kostar þó 4000kr. Eftir hann er kaffi og a.m.k. konfekt í spilasal og spil og samvera þar. Það væri gaman að sjá sem flesta félaga mæta, bæði virka og óvirka :)

Skráning hjá Frímanni, 8678744

Lokið er fyrsta kvöldinu í hraðsveitakeppninni og leiðir sveit Pétur Guðjónssonar. Allt um það má sjá hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar