Heimir og Gísli efstir á fyrsta kvöldi í Haust-Monrad

fimmtudagur, 18. september 2014

Fyrsta kvöldið af þremur í Haust-Monrad Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld. "Vinirnir" tóku uppá því að splitta pörunum og bar það þann fína árangur að þeir urðu í tveimur efstu sætunum. Bræðurnir Heimir og Gísli Tryggvasynir í fyrsta sæti og Árni Már og Leifur í öðru. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.

Tvö bestu kvöldin gilda til verðlauna og því geta ný pör komið inn og spilað tvö næstu kvöld.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar