Benni og Ingi efstir á fyrsta spilakvöldi BK

fimmtudagur, 11. september 2014

Fyrsta spilakvöld haustsins hjá Bridgefélagi Kópavogs var spilað í gærkvöldi. Spilað var á sjö borðum og urðu Bernódus Kristinsson og Ingvaldur Gústafsson hlutskarpastir með 61,7% skor. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs

Næsta fimmtudag hefst þriggja kvölda Monrad-tvímenningur þar sem tvö bestu kvöldin gilda til verðlauna. Spilað er í Gjábakka, félagsheimili aldraðra að Fannborg 8 kl. 19:00 á fimmtudögum.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar