Bridgemót á Reykhólum í lok ágúst

mánudagur, 18. ágúst 2014

Bridgemót - Reykhólar

 

Opna Hólakaupsmótið í bridge verður haldið laugardaginn 30. ágúst.

Mótið verður haldið í íþróttahúsinu á Reykhólum og hefst kl.12.

 

Spilaður verður tvímenningur.

Brauð og snarl verður í boði fyrir mót og svo kröftug kjötsúpa að hætti kaupmannsins í hálfleik. 

 

Kaffisopi allan daginn.

 

Keppnisstjóri verður Þórður Ingólfsson sem kemur með borðtölvur og forgefin spil.

 

Þátttökugjald er 3.000 kr. Allt innifalið.

Kvenfélagið Katla fær gjaldið óskipt.

Enginn posi, bara seðlar.

 

Gott væri að heyra í áhugasömum með skráningu , 863-2341 ( Eyvindur)

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar