Landmót UMFÍ 50+ á Húsavík
Þetta var jafnt og spennandi allan tímann og nokkrar sveitir leiddu mótið yfir daginn. Fyrir síðasta leikinn af 7 áttu 4 efstu sveitirnar góðan möguleika á sigri.
Sigurvegarar voru sveit UMSE 1 en í henni spiluðu Gylfi Pálsson, Helgi Steinsson, Ævar Ármannsson og Árni Bjarnason. Sveitirnar í 2. og 3.sæti urðu jafnar að stigum en USVH vann innbyrðisviðureignina.
Af einstökum pörum stóðu sig best þeir Sverrir Haraldsson og Hlöðver Hlöðversson í sveit Mývatns með 1,76 impa inn að meðaltali í spili. Allt um mótið og butlerinn má sjá hér
1. UMSE 1 127 stig
2. USVH 122 stig
3. UMSE 2 122 stig
4. HSÞ Bridds 121 stig
5. Mývatn 110 stig
6. Vesturhlíð 104 stig
7. Skipaskagi 100 stig
8. Njarðvík 97 stig
9. Skýjaborgin 92 stig
10. UMSS 91 stig
11. HSK-HSS 89 stig
12. Dalamenn 75 stig