Eiður Mar er bronsstigameistari BK 2013-2014

laugardagur, 10. maí 2014

Eiður Mar Júlíusson er Bronsstigameistari Bridgefélags Kópavogs tímabilið 2013-2014. Hann safnaði 310 stigum alls og varð 15 stigum á undan föður sínum. Ingvaldur Gústafsson átti kost á því að jafna við Eið með því að vinna síðasta spilakvöldið en tókst það ekki. Alls fengu 98 spilarar bronsstig þennan veturinn. Bronsstigin má sjá á heimaíðu Bridgefélags Kópavogs. 

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar