Rangæingar -- Úrslitin ráðin

miðvikudagur, 16. apríl 2014

Sl. þriðjudagskvöld héldum við okkar árlega Páskamót með þátttöku 15 para.   Byggingafyrirtækið Krappi ehf. gaf fjölda páskaeggja sem dreift var um stigatöfluna.    Eins og vera ber voru þrjú efstu sætin verðlaunuð með einkar myndarlegum páskaeggjum en að auki voru veitt verðlaun fyrir hina ýmsu flokka, m.a. kvennaflokk og nýliðaflokk, mestu vonbrigði kvöldsins o.fl.   "Við vorum ákafar í kvöld, enda ætluðum við okkur sigur í flokknum" sagði stoltur sigurvegarinn í kvennaflokki, Skíðbakkagoðinn Rútur Pálsson, og braut sér mola af verðlaunafénu.   Sýslumannsfrúin í Vík í Mýrdal kom hins vegar sá og sigraði í opnum flokki en þeir félagar og trúbræður, Sigurður Jakob og Sigurjón Pálsson, unnu öruggan sigur í gærkvöldi, komu í mark á 64,3% skori.    Framsókn er í sókn og sama má segja um framsóknarforkólfinn og aðalritarann Berg Pálsson, sem varð í öðru sæti með 57,7% skor.  Eftir að Tottenhamtröllið snerist til trúar á Sigmund, Berg og flokkinn, hefur þeim félögum gengið allt í haginn og farið mikinn í stigaskori nú í vetrarlok.   Þriðju urðu svo Skógamennirnir Hrói og Höttur, þeir Jói og Siggi, með 57,4% skor.   Innilega til hamingju drengir!!!!

Úrsltin í Meistarakeppninni réðust einnig á þessu lokakvöldi.   Fyrir kvöldið munaði einungis 4 bronsstigum á prestinum og slátraranum.   Mikið álag var því á makkerum þeirra beggja en hvorugur virtist höndla spennustigið og svo fór að hvorugt parið náði í stig.    Þar með hreppti slátrarinn bikarinn og sæmdarheitið á jafnglíminu það kvöldið og fær sitt nafn letrað á farandbikarinn.   Innilega til hamingju vinur minn!!   Halldór og Kristján áttu hins vegar afar góðan sprett í lok vertíðar og svo glöggt stóð á lokametrunum að þeim vantaði einungis tvö vinningsstig í gærkvöldi til að hreppa fimmta og síðasta stigasætið, sem gaf 7 stig og hefði þar með fært prestinum titilinn.   Tæpara verður það nú ekki og mikið er nú keppnin í vetur búin að vera jöfn og skemmtileg!

Þar með er formlegri vetrardagskrá félagsins lokið, nema hvað lokakvöldið síðasta vetrardag er eftir með verðlaunaafhendingum og lokamóti þar sem veitt verða votleg en notadrjúg verðlaun að vanda, í allskonar flokkum.

Úrsltin frá í gær og spilin má sjá hér

Gleðilega páska!

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar