Gísli og Gabríel unnu Butlerinn í Kópavogi.

fimmtudagur, 10. apríl 2014

Þriggja kvölda Butler-tvímenningi Bridgefélags Kópavogs lauk í gærkvöldi. Gísli Steingrímsson og Gabríel Gíslason unnu nokkuð sannfærandi sigur þrátt fyrir að fá aðeins 1,5 impa í plús síðasta kvöldið en Hjálmar S Pálsson og Kjartan Jóhannsson skoruðu  þá mest, eða 65 impa sem dugði í annað sætið. Öll úrslit og lokastöðuna má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.

Næst verður spilað á sumardaginn fyrsta, þann 24 apríl en þá verður eins kvölds tvímenningur.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar