Gísli og Gabríel unnu Butlerinn í Kópavogi.
fimmtudagur, 10. apríl 2014
Þriggja kvölda Butler-tvímenningi Bridgefélags Kópavogs lauk í gærkvöldi. Gísli Steingrímsson og Gabríel Gíslason unnu nokkuð sannfærandi sigur þrátt fyrir að fá aðeins 1,5 impa í plús síðasta kvöldið en Hjálmar S Pálsson og Kjartan Jóhannsson skoruðu þá mest, eða 65 impa sem dugði í annað sætið. Öll úrslit og lokastöðuna má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.
Næst verður spilað á sumardaginn fyrsta, þann 24 apríl en þá verður eins kvölds tvímenningur.