Rangæingar -- Eftirsótt heiðurssæti!

miðvikudagur, 12. mars 2014

Sl. þriðjudagskvöld komu menn og konur enn saman á Heimalandi, þar sem aðaltvímenningur félagsins hófst.   Keppt er um farandgripi sem Samverk hf. á Hellu gaf til keppninnar.   Gripirnir eru eru úr gleri, einkar fallegir og hannaðir og smíðaðir af Sigurði Kristni Guðbjörnssyni (Didda), einum af félagsmönnum okkar.

Til leiks mættu 16 pör þetta fyrsta kvöld af fimm.   Þar sem einkar vel liggur á spilastjóra um þessar mundir, fékk hann gjaldkera félagsins til að draga upp veskið og splæsa í þrjá bjórkassa.   Það var létt verk, enda veski félagsins fremur létt og ekki margra manna tak að ná því upp.   Bjór var svo dreift um stigatöfluna eftir geðþótta spilastjóra.   Flesta bjóra fengu toppsætin þrjú en að auki voru veittir bjórar fyrir heiðurssætið, kvennaflokkinn eins og hann lagði sig, og Tottenhamsætið.

Engu var líkara en menn og konur vissu það fyrir að heiðurssætið yrði verðlaunað sérstaklega.  Alla vega var hart slegist á þeim endanum en rólegra var á hinum.   Þrjú pör urðu neðst og jöfn og fengu vitaskuld öll verðskulduð verðlaun fyrir glæstan árangur.    Jafnrétti er haft í hávegum hjá okkur og því fengu þeir karlar sem spiluðu við konur einnig verðlaun fyrir þátttöku sína í kvennaflokki.

Nenni ekki að telja upp sigurvegara og bjórþega, enda má sjá árangur og spilin hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar