Miðvikudagsklúbburinn: Halldór og Halldór efstir í 45 para tvímenning!

fimmtudagur, 6. mars 2014

Halldór Már Sverrisson og Halldór Guðjónsson urðu efstir af 45 pörum á spilakvöldi Miðvikudagsklúbbsins. Þau leiðu mistök urðu við innslátt úrslita að eftir kvöldið voru þeir í 3ja sæti en eftir leiðréttingu þá sátu þeir uppi sem sigurvegarar með 64,3% skor. Í 2. sæti voru Unnar Atli Guðmundsson og Björn Árnason með 62,2% og 3ja sæti varð hlutskipti Þorgerðar Jónsdóttur og Aðalsteins Jörgenssonar með 61,9%. Þau voru hinsvegar efst fyrir leiðréttingu en hröpuðu um 2 sæti við leiðréttinguna.

Öll úrslit og spil Miðvikudagsklúbbsins

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar