Miðvikudagsklúbburinn: Emma og Davíð unnu 36 para tvímenning! Madeiraleikurinn byrjar 19. mars!

fimmtudagur, 13. mars 2014

Emma Axelsdóttir og Davíð Lúðvíksson unnu 36 para tvímenning með 63,7% skor!  Stefán Freyr Guðmundsson og Bergsteinn Einarsson enduðu í 2. sæti með 60% og jafnir í 3ja sæti voru Hermann Friðriksson og Ingólfur Hlynsson og Eðvarð Hallgrímsson og Magnús Sverrisson

Öll úrslit og spil

Madeiraleikur Miðvikudagsklúbbsins

2 mótspakkar á Madeiramótið 2014 (www.bridge-madeira.com) verða dregnir út af handahófi fyrir þá sem mæta í 7 skipti af 9 mögulegum á milli 19. mars og 14. maí.  Þeir sem hafa mætt í 6 skipti verða einnig dregnir út ef þeir hafa mætt 2x eða oftar í Bridgefélag Hafnarfjarðar á sama tímabili.

Heildarverðmæti hvers pakka er 553 evrur og er hótel í 2ja manna herbergi í viku, keppnisgjöld, ferðir til og frá flugvellinum, 2x kvöldverður og ein útsýnisferð innifalin í pakkanum.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar